Beint alþjóðaflug frá akureyri

Forsvarsmenn Transatlantic vinna nú að því að bjóða upp á vikulegar áætlunarferðir í millilandaflugi frá Akureyri til Kaupmannahafnar næsta sumar. Viðræður standa yfir við eistneska félagið Estonian Air. Yrði Akureyri nýr áfangastaður hjá félaginu.

Þetta kemur fram á turisti.is. Beint flug hefur áður verið reynt frá Akureyri, síðast sumarið 2012. Fjöldi sérstakra ferða, ekki síst til sólarlanda, er árlega frá Akureyri í sérstöku pakkaflugi. Hafa Akureyrarbær og ferðamálayfirvöld reynt að vinna að traustum grunni áætlunarflugs, ekki síst með vaxandi fjölda erlendra ferðamanna til Íslands.

Samkvæmt frétt turisti.is er stefnt að brottförum alla laugardaga frá Akureyri frá lokum maí og út september. Endanlega mun liggja fyrir um áramót hvort af fluginu verður. Verð verður á bilinu 60 til 70 þúsund krónur, farangur innifalinn.