Donald Trump forseti Bandaríkjanna tilkynnir í dag hvort Bandaríkin verði áfram aðili að kjarnorkusamkomulaginu við Íran, sem var gert árið 2015 og Bretland, Rússland, Frakkland, Kína og Þýskaland styðja.
Það felur í sér að Íranar hægðu á kjarnorkutilraunum og minnkuðu birgðir af auðguðu úrani í skiptum fyrir afléttingu refsiaðgerða og viðskiptaþvingana.
Margt bendir til þess að Trump hætti þáttöku í samkomulaginu. Eftir viðræður við Trump nýlega sagði Emmanuel Macron forseti Frakklands, að hann teldi Trump ætla að draga Bandaríkin út „af innanlandsástæðum.“
Trump sagðist á Twitter í gær ætla að tilkynna ákvörðun sína í Hvíta húsinu klukkan 14 í dag að staðartíma, eða klukkan 18 að íslenskum tíma.
I will be announcing my decision on the Iran Deal tomorrow from the White House at 2:00pm.
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) May 7, 2018