Bdsm-félagið gengið í samtökin 78

Umsókn BDSM félagsins á Íslandi um inngöngu í Samtökin 78 var samþykkt á aðalfundi samtakanna í gærdag. 37 greiddu atkvæði með umsókninni en 31 var á móti.
 

Auður Magndís Auðardóttir, framkvæmdastjóri Samtakanna 78 sagði í samtali við fréttastofu RÚV að umsóknin hefði legið í loftinu í um hálft annað ár, en nokkur aðildarfélög væru að samtökunum.  Hún segir að félagar í BDSM félaginu hafi talið sig fá styrk af því að vera í formlegu samstarfi við önnur hinsegin félög. Þeir telji sig verða fyrir fordómum og eigi því samleið í baráttunni og samstaðan styrki.  Þetta sé vel þekkt fyrirkomulag í öðrum löndum, til dæmis Noregi. 

Auður Magndís segir við RÚV að þótt 31 hafi greitt atkvæði gegn inngöngu BDSM félagsins hafi fundurinn ekki verið erfiður, fólki hafi mismunandi skoðanir og skipst hafi verið á skoðunum, en hitafundur hafi þetta ekki verið.

Hvernig samstarfi félaganna verður háttað segir hún að eigi eftir að koma í ljós, stjórnir beggja félaga muni finna út úr því með tíð og tíma, eins og segir í frétt RÚV sem hér er vitnað til.