Tvö lögreglumdæmi ástunda þöggun

Öll lögregluumdæmi, þar sem hátíðarhöld fara fram um verslunarmannahelgina, hyggjast svara fyrirspurnum fjölmiðla um fjölda kynferðisbrota, að lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og í Vestmannaeyjum undanskildum.

Fréttablaðið greinir frá þessu í dag í tilefni af því nýmæli hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum að greina ekki frá þeim fjölda kynferðisbrota sem kemur upp á Þjóðhátíð í Eyjum, stærstu útihátíð verslunarmannahelgarinnar, en ákvörðunin hefur vakið mikla athygli og gagbrýni en fram hefur komið að sextán nauðganir hafi verið tilkynntar til lögreglu á þjóðhátíð frá árinu 2004.

Upplýsingagjöf til fjölmiðla verður með óbreyttum hætti hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Fjölmiðlar munu ekki geta hringt með fyrirspurnir um helgina en þess í stað sendir lögreglan frá sér varðstjórapóst þrisvar á sólarhring: \"Við upplýsum um þau mál sem koma upp en oftar en ekki þá eru ákveðin mál ekki látin fylgja með sökum eðlis þeirra. Kynferðisbrot eru ein þeirra,“ segir Þórir Ingvarsson, varðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. \"Oftar en ekki, þegar þau [kynferðisbrot] koma upp, þá eru þau viðkvæm og það hefur ekki verið talið efni til að setja þau í þessar færslur frekar en önnur viðkvæm mál sem lögreglan er að sinna, svo sem mannslát,“ bætir Þórir við.

Fréttablaðið hafði samband við lögregluna á Akureyri, þar sem Ein með öllu og Unglingalandsmót UMFÍ fara fram um helgina. Þar fengust þau svör að lögreglan svari oftast fyrirspurnum til lögreglu. Það gildi í raun engar reglur um það. Það sama var uppi á teningnum hjá lögreglunni á Vestfjörðum þar sem Mýrarboltinn fer fram. Enn verður hægt að fá upplýsingar um fjölda uppkominna mála fyrir vestan, af hvaða tagi sem þau eru. Jón Vilhelmsson, yfirlögregluþjónn á Austurlandi, segir að engar breytingar verði gerðar á upplýsingagjöf til fjölmiðla. \"Ég svara fyrirspurnum fjölmiðla. Við höfum ekki átt í neinum vandræðum með þetta.“

Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, segir það óeðlilegt ef upplýsingar um fjölda kynferðisbrota mega ekki koma fram: \"„Mér finnst óheppilegt að slíkar aðgerðir gagnast þeim sem síst skyldi. Þeim sem fremja þessi brot og eins þeim sem vilja halda flekklausri ásýnd þessara samkoma,“ segir hún við blaðið