Bauna á Kristrúnu: „Lék fórnarlamb“

Hagnaður Kristrúnar Frostadóttur af fjárfestingu sinni í Kviku banka nam 30 milljónum króna eftir skatta, hún sagði í Silfrinu um helgina að eng­inn hafi getað séð það fyr­ir að Kviku banki sé orðinn þre­falt stærri núna en hann var þegar hún keypti hluta­bréfin.

Hún keypti bréfin árið 2018 á 3 milljónir króna.

„Ég hef fengið 30 millj­ón­ir og það eru mikl­ir pen­ing­ar en þetta er fjár­fest­ing sem ég lagði í,” sagði Kristrún.

Þá sagðist hún vilja hafa allt uppi á borðum áður en hún hef­ur störf á Alþingi. Kristrún bætti því við að hún sé hrein­skil­in mann­eskja og „al­gjör­lega hags­muna­laus”.

Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu, skýtur á hana á Twitter og segir:

„Það er nú gott að vita. En það gerði því enginn skóna að e-ð væri athugavert við kaupréttinn (og þessa afar áhættulausu fjárfestingu),“ segir hann. „Hitt var athugavert að hún tók ekki síma, vildi engu svara, lék fórnarlamb og sakaði fjölmiðla um samsæri gegn sér.“

Magnús Ragnarsson, stjórnandi Sjónvarps Símans, bætti svo við:

„Best af öllu er að loks er kominn algerlega hagsmunalaus þingmaður.“

Í Staksteinum Morgunblaðsins í dag er einnig baunað á Kristrúnu, þar er vitnað í orð hennar fyrir kosningar:

„Ég fékk ekki 1 kr. í kaupauka­greiðslu frá Kviku og borgaði fyr­ir mína eig­in fjár­fest­ingu í fé­lag­inu, takk fyr­ir mig.“

Segir í Staksteinum:

„Þar við sat þangað til í gær þegar hún upp­lýsti að hún hefði sem banka­starfsmaður keypt bréf fyr­ir 3 millj­ón­ir króna sem hún hefði getað selt í þrennu lagi. Fyrst hafi hún selt með 8 millj­óna ávinn­ingi eft­ir skatta, næst hafi ávinn­ing­ur­inn verið 30 millj­ón­ir eft­ir skatta og verðmæti þess sem sé eft­ir séu 45 millj­ón­ir eft­ir skatta. Sam­tals er þetta þá hagnaður eft­ir skatta upp á rúm­ar 80 millj­ón­ir fyr­ir 3 millj­óna fjár­fest­ingu.“

Er hún sökuð um að afvegaleiða umræðuna:

„Kristrún seg­ir ekk­ert hafa verið at­huga­vert við þessa fjár­fest­ingu og því hef­ur svo sem ekki verið haldið fram að svo sé. Hún seg­ist aðeins hafa dottið í lukkupott­inn. Það má til sanns veg­ar færa. En hefði ekki verið rétt að segja kjós­end­um frá því í stað þess að af­vega­leiða þá og segj­ast ekki hafa fengið „1 kr. í kaupauka­greiðslu“?“

Kristrún sjálf hvetur fólk til að horfa á viðtalið í Silfrinu, hún segir á Facebook:

„Hvet alla forvitna til að hlusta á viðtalið. Svo ætla ég að tala um pólitík, málefni.“