Batahorfur drengsins taldar góðar

Ungi drengurinn, sem lá þungt haldinn á gjörgæsludeil Landspítalans eftir alvarlegt slys í Læknum í Hafnarfirði í síðustu viku hefur nú verið útskrifaður af deildinni og gtelja læknar að batahorfur hans séu góðar. Honum var haldið sofandi í nokkra daga eftir slysið, en vaknaði af sjálfsdáðum fyrir helgi - og er, þrátt fyrir að vera mj0g máttfarinn eftir slysið, á batavegi.


Drengurinn, sem er 9 ára, féll ásamt eldri bróður sínum ofan í hyl í stíflu í Læknum í Hafnarfirði, en þar fellur alla jafna nokkuð kröftugur foss fram af lóninu í Læknum. Fullorðinn maður varð slyssins var og reyndi að bjarga báðum drengjunum en var sjálfur hætt kominn áður en björgunarlið kom á vettvang.


Drengirnir voru báðir fluttir á slysadeild eftir björgunina og var mjög tvísýnt í fyrstu um afdrif þeirra.