Steinunn Kristjánsdóttir fornleifafræðingur hélt erindið „Klausturhald – konur og pólitík“ á dögunum um það hvernig konur á Íslandi voru peð í valdatafli höfðingja á miðöldum, til að mynda gefnar barnungar í hjónabönd. Eina undankomuleið þeirra var að ganga í klaustur. Nunnuklaustrin urðu tvö hér á landi og stórmerkilegar stofnanir kvenna, hluti af alþjóðlegri kvennahreyfingu. Þar gátu konur sem flúðu ofbeldisfulla eiginmenn líka átt athvarf.
Steinunn er gestur Björns Jóns Bragasonar í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld, þar sem hún fer yfir afar athyglisverða sögu þessara kvenna.
„Það héldu margir að annað hvort myndi ég tala um Klaustur bar ferðina í [nóvember] eða þá að ég ætlaði að fara að tala um nunnur í nunnuklaustrum, en ég var að tala um konur í þessu valdatafli. Þær skipta nefnilega mjög miklu máli og mér finnst eins og það hafi verið horft ansi mikið framhjá þeim í því. Það hefur verið einblínt meira á kannski það sem sneri beint að efnahag, en þær voru einmitt svolítið líka eins og skiptimynt í þessari valdabaráttu sem átti sér stað á miðöldum. Þessi valdabarátta, hún náttúrulega smýgur inn í allt klausturhaldið og klausturstofnanir,“ segir Steinunn.
Í erindi sínu talaði hún einnig um frillulíf íslenskra höfðingja og kirkjunnar manna á fyrri öldum, sem Rómarkirkju sóttist seint að uppræta. „Þetta eru ekki bara höfðingjar, heldur líka kirkjunnar menn, sem er nú mjög merkilegt vegna þess að það var nú eitt af því sem kaþólska kirkjan bannar. Prestar, biskupar eða þá ábótar eða hvað það var, og þetta átti náttúrulega líka við um konur, að þeir mættu ekki eiga konur og þær mættu ekki eiga menn, þá s.s. þjónar kirkjunnar. Þetta er mjög algengt og það er líka eitt sem er innleitt hérlendis og í öllum þeim löndum sem meðtóku kristna trú, var það að páfi innleiðir einkvæni. Eins konar form af fjölkvæni hafði þá tíðkast mjög lengi meðal germanskra þjóða og tekur mjög langan tíma að uppræta. Það er einmitt svolítið merkilegt til þess að hugsa að einmitt þetta fjölkvæni, að þetta form hafi tíðkast hér, að menn hafi átt margar konur. Oftast var þetta nú ein kona og margar frillur.“
Nánar er rætt við Steinunni í 21 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.