Alræmdur barnaníðingur býr í miðbænum: með útsýni yfir leikvöll – „ég veit ekki hvort ég er betri, það kemur í ljós“ - játaði brot á um 50 börnum

DV birti í blaðinu sínu í dag kort hvar menn búa sem hlotið hafa dóm fyrir barnaníð. Allir þeir brotamenn sem DV birtir á kortinu hafa hlotið dóm fyrir kynferðisbrot gegn börnum og ungmennum. Á vef DV segir að upplýsingarnar séu unnar upp úr opinberum gögnum og þjóðskrá. Í umfjöllun DV segir að einn barnaníðingur sem hefur viðurkennt að hafa misnotað allt að fimmtíu börn sé með útsýni yfir leikvöll og sé búsettur í miðbæ Reykjavíkur.

Í frétt um barnaníðingskortið sem birt er á vef DV kemur ekki fram hver umræddur barnaníðingur er, en einstaklingurinn sem um ræðir er Karl Vignir Þorsteinsson sem haustið 2013 var dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir gróf kynferðisbrot gegn drengjum. Í samtali við DV á síðasta ári sagði Karl Vignir sjá eftir því sem hann gerði en sagði tímann verða að leiða í ljós hvort vistin hefði gert hann að betri manni. Nágrannar Karls voru slegnir óhug eftir að hafa fengið hann í hverfið.

Karl Vignir var dæmdur haustið 2013 í sjö ára fangelsi í Hæstarétti fyrir gróf kynferðisbrot gegn drengjum. Hann er  laus úr haldi og býr í miðsvæðis í lítilli íbúð þar sem hann hefur útsýni yfir leikvöll. Karl Vignir sagði á síðasta ári að hann sæi eftir því sem hann gerði en tíminn yrði að leiða í ljós hvort vistin hefði gert hann að betri manni. Nágrannar Karls voru slegnir óhug eftir að hafa fengið hann í hverfið.

DV ræddi við Karl Vigni. Hann vildi lítið tjá sig um vistina í fangelsinu. Aðspurður um hvort vistin hefði gert hann að betri manni sagði hann það yrði að koma í ljós.Karl Vignir sagði:

„Ég veit ekki hvort ég er betri, það kemur bara í ljós.“

\"\"

Karls Vignir hefur viðurkennt opinberlega að hafa misnotað allt að 50 börn og brotin sem hann var dæmdur fyrir voru framin á árunum 1995 til 2012.

Árið 2007 fjallaði DV ítarlega um sögu Karls Vignis Þorsteinssonar. Karl Vignir vandi komur sínar um árabil á Kumbaravog, upptökuheimili í eigu ríkisins. Þar gaf hann drengjum sælgæti áður en hann misnotaði þá bakvið luktar dyr.

Þá var Karl Vignir lengi vel starfsmaður á Sólheimum í Grímsnesi. Þaðan var honum vikið úr starfi vegna gruns um kynferðisbrot. Karl Vignir var einnig safnaðarmeðlimur í Kirkju sjöunda dags aðventista. Starf hans þar fór á sama veg og í Grímsnesi en árið 1997 var honum vikið úr söfnuðinum eftir að stúlka innan kirkjunnar sagði frá því að Karl Vignir hafi ítrekað misnotað hana kynferðislega. Það mál komst aldrei til kasta lögreglu.

Fyrst var fjallað um hrottaleg níðingsverk Karls Vignis árið 2007 og var hann þá nafngreindur. Þrátt fyrir það ákvað kirkjan að verðlauna Karl Vigni fyrir störf í þágu safnaðarins.

Karl Vignir er nú laus allra mála og býr eins og áður segir í lítilli íbúð í nágrenni við Hlemm og veit ekki hvort hann sé betri maður. Það eigi eftir að koma í ljós.