Barnamisnotkun rædd í ég bara spyr

Áhorfendur spyrja um kynferðisofbeldi gegn börnum í upplýsingaþættinum Ég bara spyr á Hringbraut í kvöld, en þar fást einmitt svör við mörgu því helsta sem fólk - og ekki síst foreldrar - þurfa að vita um þetta viðkvæma efni til að tryggja öryggi barna og ungmenna.

Það er Sigríður Björnsdóttir frá samtökunum Blátt áfram sem situr fyrir svörum hjá Rakel Sveinsdóttur í þætti kvöldsins, en Sigríður gjörþekkir málaflokkinn og hefur leitt umræðu um hann um langt árabil.

Meðal þess sem er til umræðu í þætti kvöldsins er þáttur kvenna í kynferðisofbveldi gagnvart börnum, en hann hefur gjarnan legið í þagnargildi rétt eins og það sé einvörðungu annað kynið sem níðist á börnum í samfélagi vorra daga. Svo er ekki, þó svo karlmenn séu raunar í yfirgnæfandi tilvika gerendur í málum af þessum toga.

Þátturinn í kvöld er upplýsandi og fræðandi og mikilvægt innlegg í umræðu sem þarf ávallt að vera opin í samfélaginu.

Ég bara spyr byrjar klukkan 21:30 í kvöld og er þátturinn endursýndur strax klukkan 23:30.