Barnaheill opna nýja ábendingalínu fyrir börn - ábendingar fara til skoðunar og rannsóknar hjá lögreglu

Í dag var opnuð ný og endurbætt tilkynningarsíða Ábendingalínunnar á heimasíðu Barnaheilla. Er hún sniðin að ólíkum aldurshópum með þeim tilgangi að auðvelda börnum að senda tilkynningu í gegnum netið. Á nýju tilkynningarsíðunni er einnig að finna fræðsluefni um lög og skilgreiningar á ofbeldi og öðrum atriðum sem hægt er að tilkynna í gegnum Ábendingalínuna.

Barnaheill segja að markmiðið með Ábendingalínunni er að vinna gegn ofbeldi gegn börnum á netinu, meðal annars að útrýma myndefni sem sýnir kynferðisofbeldi gegn börnum og birt er á Internetinu. Þá eru markmiðin einnig að vinna gegn tælingu og hatursorðræðu á netinu. Ábendingalínan er starfrækt í samvinnu við Ríkislögreglustjóra og er aðili að SAFT-verkefninu – vakningarátaki um örugga tækninotkun barna og unglinga á Íslandi. Ábendingar fara til skoðunar og rannsóknar hjá lögreglu sem rekur slóðir efnis, finnur hvar það er vistað og sér til þess að það sé fjarlægt.

Barnaheill hafa frá árinu 2001 tekið þátt í alþjóðlegu verkefni um vernd barna gegn kynferðislegu ofbeldi á netinu. Markmið þess er að vekja athygli almennings, lögreglu, löggjafans, netþjónustuaðila, barnaverndaryfirvalda og fleiri aðila á þætti netsins í kynferðislegu ofbeldi gegn börnum og þrýsta á stjórnvöld um að axla ábyrgð í þessum málaflokki. Barnaheill eru í alþjóðasamtökunum INHOPE, regnhlífarsamtökum ábendingalína. Í samtökunum eru meira en 50 ábendingalínur í 45 löndum. Þær eru í öllum heimsálfum en flestar í Evrópu.