Barn braut hnéskel í hálku

Nokkuð var um að fólk leitaði sér lækninga eftir byltur sem rekja má til hálku í gær. Það á ekki síst við um Norðurland en hálka var á götum, gangstéttum, leikvöllum og skólalóðum. Hefur Hringbraut heimildir um tvö óhöpp á akureyrskum leikskólum í gær sem rekja má til hálku.

Aldraðir og börn verða oft verst úti í fyrstu hálku vetrarins. Eitt alvarlegasta tilvikið í gær vegna hálkunnar átti sér stað þegar stúlka datt illa á  skólalóð eins grunnskólanna á Akureyri í gær og braut aðra  hnéskelina. Grunur leikur á að lærleggur hafi einnig sprungið auk þess sem brotnaði út úr tveimur tönnum barnsins einnig.

Lögreglan hvetur landsmenn, háa sem lága, unga sem aldraða til að fara varlega og mælir með notkun mannbrodda fyrir þá sem geta hugsað sér slíkan öryggisbúnað.

Minni hálka er á götum Akureyrar í dag en í gær, enda hlýrra, en þó leynast víða lúmsk svellalög.