Brynjari Níelssyni hlýtur að hafa leiðst í sumarfríinu sínu. Hann hefur ítrekað staðið fyrir rökræðum um ekkert á Facebooksíðu sinni. Um þessar mundir stendur hann í ritdeilu við Helgu Völu Helgadóttur, þingmann Samfylkingarinnar um einn af þessum pistlum sínum þar sem hann segir:
“Til er talsvert af gáfuðu fólki. Góðmennskan einkennir það í ræðu og riti og það er til í hvað sem er í þeim efnum á kostnað annarra. Það er mjög alþjóðasinnað enda öll þjóðhyggja merki um heimsku.”
Þarna býr Brynjar til strámann og ræðst svo af fullu afli á hann.
Tveimur dögum fyrr hafði Brynjar, sjálfsagt upp úr stökum leiðindum skrifað á sama vettvangi:
“Svo lengi sem elstu menn muna hafa vinstri menn gjarnan kallað pólitíska andstæðinga sína fasista og rasista, jafnvel þótt frægastir í þeim hópi væru grjótharðir sósíalistar.”
Sífellt færri nenna að taka þátt í hrópum og köllum í bergmálshelli Brynjars. Það verður orðið fámennt þar þegar yfir lýkur.