Bárðarbunga titrar á ný

Titrings hefur orðið vart úr Bárðarbungu síðasta sólarhringinn og mældist strærsti skjálftinn 3,1 á Ricther, en skemmst er að minnast mikillar og langvarandi skjálftahrinu í bungunni á síðasta ári sem reyndist undanfari eldgossins í Holuhrauni.

Að þessu sinni barst smáhrina jarðskjálfta úr norðurbrún öskjunnar í Bárðarbungu og stóð hún yfir frá klukkan 19:00 til 19:30 í gærkvöld, að því er fram kemur á heimasíðu Veðurstofu Íslands.

Um tugur skjálfta varð á þessum slóðum þann hálftíma sem hrinan stóð. Sá stærsti varð undir lok hrinunnar, klukkan 19.28 og mældist sem fyrr segir 3,1 stig.