Bárðarbunga skalf í nótt

Tveir allsnarpir jarðskjálftar fundust í Bárðarbungu í nótt og voru þeir báðir yfir þremur að stærð. Sá fyrri um klukkan hálf þrjú mældist 3,3 að stærð og rétt fyrir klukkan fimm mældist jafn stór skjálfti.

Sérfræðingar á Veðurstofu Íslands telja ólíklegt að mjög stutt sé í eldgos í Bárðarbungu. Líklegra sé að það taki langan tíma að safna upp kviku í eldstöðinni sem er vöktuð jafnt að degi sem nóttu af starfsmönnum Veðurstofunnar.