24.október 1975 var merkisár í sögu kvenna á Íslandi, eða í raun víðar þar sem atburðurinn vakti athygli á heimsvísu. Þá gengu konur út af vinnustöðum sínum og sameinuðust á Lækjartorgi þar sem haldnar voru ræður og fluttir baráttusöngvar. Talið er að þá hafi um 25-30.000 konur komið saman.
Árið 2005 gengu konur út kl 14:08. Samkvæmt rannsóknum á launamismun kynjanna hefði vinnudegi kvenna átt að ljúka, ef launin væru jöfn. En þessi mótmæli voru með þeim stærstu skipulögðu mótmælum í sögu Íslands þar sem mættu í kringum 50.000 konur.
Þetta árið munu konur ganga úr kl 14:55 sem þýðir að á 13 árum hefur launamismunurinn jafnast um 47 mínútur eða í kringum 3,5 mínútu á ári. Hægt er að búast við launajafnrétti í kringum árið 2053 með þessu áframhaldi, nema að róttækar breytingar eigi sér stað.
Stöndum saman í þessari baráttu. Lögum þennann eitraða galla sem verður ekki breytt nema með samstöðu og baráttu. Gerum þetta og gerum þetta saman !
Mætum öll á Arnarhól kl 15:30 og látum í okkur heyra. Fyrir okkur, fyrir konurnar okkar, fyrir stelpurnar okkar, fyrir börnin okkar.
**Snædís**