„Nei að sjálfsögðu munum við halda áfram mjög staðföst. Þetta eru okkar tillögur, það fór mjög mikil vinna í að útfæra þær. Svo ætlum við í vikunni að kynna skattaskýrslu sem þeir Stefán Ólafsson og Indriði Þorláksson hafa unnið þar sem við förum dýpra í þetta. Þannig við lítum svo á að þessi barátta sé bara rétt að hefjast,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, í samtali við fréttir Stöðvar 2.
Þar vísar hún til skattatillagna ASÍ, sem Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, sagðist í samtali í útvarpsþættinum Sprengisandi ekki vera tilbúinn til að útfæra. „Ég er hins vegar meira en tilbúinn að koma að borðinu með ASÍ varðandi tillögur sem þróa núverandi skattkerfi áfram,“ sagði Halldór Benjamín.
Samkvæmt stjórn ASÍ gera tillögurnar ráð fyrir að skattbyrði 95 prósent vinnandi fólks lækki eða haldist óbreytt en að tekjuhæstu 5 prósent muni greiða hærri skatta en nú.
Formaður Eflingar segist ekki hafa búist við því að skattatillögunum yrði tekið fagnandi af hálfu SA. Hún segir að skattkerfið eigi að vera jöfnunartæki og því eigi að beita til endurúthlutunar. Þá komi ekki til greina að slaka á skattatillögum til móts við SA, þar sem hún telur enga þörf á viðurkenningu eða samþykki frá þeim.