Saksóknari gekk alltof skammt

Guðmundar- og Geirfinnsmálið er eitthvert mesta reginklúður íslenskri réttarfarssögu og raunar á Vesturlöndum öllum - og afgreiðsla sérstaks saksóknara á nýju ári leiðréttir það engan veginn heldur viðheldur hún skömminni sem sakborningarnir í málinu sátu uppi með að ósekju.

Þetta er mat fjölmiðlamannsins Sigursteins Mássonar í þættinum Ritstjórunum á þriðjudagskvöld, en ríflega tuttugu ár eru liðin frá því hann sendi frá sér rannsóknarþættina Aðför að lögum sem breyttu skilningi almennings á stöðu sakborninganna í þessu stærsta sakamáli síðustu áratuga her á landi. Sigrusteinn metur það svo að réttarmorð hafi verið framið á fólkinu, yfirvaldið hafi farið fram gegn betri vitund og álit sérstaks saksóknara hlífi dómskerfinu að stórum hluta, fremur en að skila til þess því skömminni.

Baráttan í borginni fær sitt pláss í umræðunni, en tveggja turna slagur er þar byrjaður að teikna sig inn á síðuna, eða öllu heldur tveggja raðhúsa orrusta, háhýsin séu ekki meiri en svo sem Dagur og Eyþór standi fyrir, en minni framboðin muni klárlega skipta mesta um það hvor blokkin nær meirihluta í borginni í vor.

Stóra umskurðarstríðið er og tekið fyrir, svo og úttekt Stundarinnar á kynferðisbrotum vinsæls þjálfara Tindastóls á Sauðárkróki sem bærinn þaggaði niður svo eftir var tekið, en mál af því tagi er þekkt um allt land, hvort heldur er í stærri eða smærri samfélögunum, sem leiðir hugann að andvaraleysinu sem ríkir enn í þessum málaflokki; kynferðisglæpir gegn börnum, stúlkum og konum eru bara ekki teknir jafn alvarlega og innbrot, skjalafals og dópsala svo nokkur algeng refsilagabrot séu nefnd til sögunnar.

Ritstjórarnir eru frumsýndir öll þriðjudagskvöld klukkan 21:00 og eru endursýndir í dag en einnig sjáanlegir á vefnum hringbraut.is.