Trúnaðarráð Bárunnar sendi frá sér ályktun þar sem hún fordæmdi uppsagnir á starfsfólki á skrifstofu Eflingar og sagði ákvörðunina munu hafa slæm áhrif á réttindabaráttu launafólks. Þá gagnrýnir ráðið einnig framgöngu og orðaval forsvarsmanna Eflingar sem þeir nota gegn félögum sínum og starfsfólki.
Trúnaðarráð Bárunnar hafnar sömuleiðis útskýringum stjórnar Eflingar um ástæður uppsagnanna og segir það vera ljóst að þær séu hafi verið keyrðar áfram til þess að tryggja hollustu við formann og stefnu hans.
Í ályktuninni er aðgerðarleysi Miðstjórn ASÍ og Starfsgreinasambandsins í máli skrifstofufólks Eflingar sömuleiðis fordæmt. Þá er sjónum einnig beint að framgöngu formanna SGS og VR sem, að þeirra sögn, hafa varið aðför Baráttulistans að starfsfólki Eflingar.
Átökin sem eiga sér stað hjá stéttarfélaginu Eflingu sett mark sitt á daginn. Á degi þar sem samstaða baráttufólks í verkalýðsmálum er venjulega sett oddinn birta nú einstaklingar og samtök yfirlýsingar um hópuppsagnirnar í Eflingu. Verkalýðshreyfingin er fyrir vikið klofin í afstöðu sinni gagnvart útspili Sólveigar og meðreiðarsveinum hennar.