Barach obama netflix sjónvarpsstjarna?

Barach Obama fyrrverandi Bandaríkjaforseti er í viðræðum við Netflix um að gera sjónvarpsþáttaröð. Viðræðurnar eru sagðar langt komnar. Reiknað er með að eiginkona hans Michelle Obama taki einnig þátt í verkefninu. Netflix streymisveitan er nú með hátt í 118 milljónir áskrifenda um allan heim.

Ekki er vitað um umfjöllunarefni né efnistök þáttanna, en New York Times hefur eftir fólki sem þekkir til samninganna að Obama ætli ekki sérstaklega að beina spjótum sínum gegn Donald Trump. Hins vegar er bent á að þættirnir muni þýða að Obama fær greiðan aðgang að almenningi á sama hátt og vinsælir hægri miðlar og Twitter hafa haft þýðingu fyrir Trump.

Þetta yrði ekki í fyrsta sinn sem Obama væri á Netflix. Hann var viðmælandi Davids Lettermans í viðtalsþáttaröð sem var send út í ársbyrjun.