Bara útlendinga í hæstarétt

„Við eigum að skipa bara heiðarlega útlendinga í Hæstarétt,“ segir Jónas Kristjánsson, fyrrum ritstjóri í nýjum bloggpistli, þar sem hann gerir störf réttarins að umræðuefni.

Tilefnið er eitt helsta fréttamál síðustu daga, hvernig rétturinn túlkar jafnréttislög þannig að Hæstiréttur þurfi ekki að hlíta þeim. Mjög hefur verið deilt um fyrirhugaða skipun nýs dómara við Hæstarétt eins og Hringbraut hefur fjallað um áður.

„Hæstiréttur telur ekki í sínum verkahring að vernda lýðræði. Hlutverk hans sé fremur að vernda líndælsku, sérstæða túlkun stakra orða. Verndar ekki rétt fólks til að fá að greiða atkvæði. Hindrar fremur fólk í að gera rétt bakvið pappaskilrúm, þegar Hæstiréttur vill timbur,“ skrifar Jónas.

„Enginn grunur lá samt á fölsunum af neinu tagi. Hæstiréttur taldi sér kleift að bregða fæti fyrir lýðræðið. Æ síðan hef ég fyrirlitið þessa karllægu bófa. Mér kemur ekki á óvart, að þeir brjóti jafnréttislög. Þeir ákveða hverju sinni að geðþótta, hvaða lög gildi og hvaða lög séu ógild,“ skrifar hinn orðhvati blaðamaður í pistli sínum sem lesa má hér.