Trausti Valsson arkitekt og skipulagsfræðingur segir að miðbær Reykjavíkur sé ekki lengur fyrir hinn almenna mann. Aðeins ríkir og ferðamenn geti búið þar, því verð hafi rokið upp. Hann sjálfur hafi ekki efni á að búa í miðbænum þótt hann feginn vildi.
Þetta kom fram í fréttaþættinum Kvikunni á mánudagskvöld en þar var Trausti annar gesta þáttarins sem sjá má hér á vef stöðvarinnar.
Fyrir skömmu kom út bók eftir Trausta Mótun framtíðar. Trausti mun ræða í þættinum ónýta byggðastefnu, flugvallarmál, Grímsey og fleira en hann hefur látið ýmis mál mjög til sín taka.
Í þættinum varar Trausti við þeim fylgifiskum sem fylgja ferðamannabombunni þótt aukinn straumur ferðamanna sé heilt yfir mikið happ fyrir þjóðarbúið.
Sjá brot úr viðtalinu við Trausta hér og hér.
Kvikan fer af stað klukkan 21:30 í kvöld og er endursýnd klukkan 23:30.