Hanna birna var búin að fá nóg

Hanna Birna Kristjánsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins segist \"bara vera búin að fá nóg\" en hún hefur verið viðloðandi stjórnmál í 25 ár í Sjálfstæðisflokknum.Hanna Birna hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi þingsetu fyrir næstu kosningar og hætta í stjórnmálum.

Hún segist í viðtali á Hringbraut í kvöld kl.21 vera ástríðustjórnmálamaður og sú ákvörðun að hætta hafi verið erfið en eins og hún orðar það sjálf \"þetta er orðið gott\". Ástæður fyrir brotthvarfinu séu margvíslegar, það séu alls konar ástæður fyrir því að hún vilji nýta krafta sína annars staðar. Hvert hún stefnir sé algerlega óráðið. Hún segir þó að það sem hafi reynst henni erfitt hafi verið að læra á vinnubrögð þingsins og vera um leið ráðherra en Hanna Birna varð strax ráherra árið 2013, um leið og hún settist fyrst á Alþingi. Hún vill þó aðallega minnast þeirra góðu verka sem hún kom til leiðar í borgarstjórn og sem innanríkisráðherra en að dvelja við mál líka og Lekamálið svonefnda. Hún útilokar með öllu að bjóða sig fram fyrir annan flokk.  

Hanna Birna klárar kjörtímabilið á þingi en hún hef­ur setið á Alþingi frá ár­inu 2013 og varð þá innanríkisráðherra til ársins 2014 þegar hún sagði af sér embætti vegna hins margnefnda Lekamáls.