Blóðgjafir homma eru nú til endurskoðunar og tillagna að vænta, segir Þórólfur Guðnason smitsjúkdómalæknir í viðtali í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun. Samkynhneigðir karlar fá ekki að gefa blóð á Íslandi, algjört bann ríkir um það og deilt var á þá staðreynd í atriði í Áramótaskaupinu.
Í Skaupinu komu frægir samkynhneigðir karlar saman og sungu, þar sem þeir spurðu hvort hommar væru ekki menn, með breyttum texta við lagið Álfar eftir Magnús Þór Sigmundsson.
Í viðtalinu á Rás 2 segir Þórólfur að ákveðnir blóðsjúkdómar séu algengari í þessum hópi en öðrum og því sé þetta ekki spurning um réttindi ákveðins hóps til að gefa blóð, heldur réttindi blóðþega til að fá öruggt blóð. Á flestum hinum Norðurlöndunum sé miðað við 12 mánaða kynlífsbindindi samkynhneigðra karla og Svíar eru að hugsa um að minnka það niður í 6 mánuði, auk þess að Danmörk miði við 4 mánaða kynlífsbindindi. Það séu því til aðferðir til að tryggja að blóðið sé öruggt og bara spurning um kostnað og vilja til að taka slíkar aðferðir í notkun hér.
„Ákvarðanataka um þetta liggur að mínu mati hjá Blóðbankanum og hans ráðgjafanefnd sem er að fjalla um þetta núna. Ég veit líka að þetta er inni á borði ráðherra. Ég vænti þess að á næstunni verði tekin ákvörðun um hvernig þetta verður í framtíðinni hér“, segir Þórólfur einnig.