Bann við áfengisauglýsingum virkar ekki

Bann við áfengisauglýsingum í íslenskum fjölmiðlum er ekki að virka, segja þeir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda (FA) og Valgeir Magnússon, framkvæmdastjóri Pipar TBWA auglýsingastofu og formaður SÍA, Sambands íslenskra auglýsingastofa.

Þeir eru báðir eindregið þeirrar skoðunar að lögin í þessa veru nái ekki markmiði sínu; áfengisauglýsingar séu mjög víða á Íslandi, því þær birtist í erlendum tímaritum, á erlendum sjónvarpsstöðvum og á netinu.

Ólafur sagði í þættinum Ég bara spyr á Hringbraut í gærkvöld, sem hægt er að sjá hér á vef stöðvarinnar, að FA hefði lagt til við Alþingi, að auglýsingabanninu yrði aflétt og siðareglur um áfengisauglýsingar lagðar á í staðinn. Þetta væri svipuð leið og Svíar hefðu farið, með góðum árangri.

Í sama streng tók Valgeir sem sagði dóma og sektir hvort eð er ekki fæla auglýsendur frá. Miklu þyngri dómur fyrir auglýsendur væri ef SÍA dæmdi auglýsingar ósiðlegar. Það hefði til dæmis aldrei gerst að auglýsingar færu ekki úr umferð, ef slíkur dómur félli. ,,Þá eru auglýsendur flengdir,” sagði Valgeir, sem einnig rifjaði upp í þættinum, fyrstu sjónvarpsáfengisauglýsinguna á Íslandi, sem hann stóð að fyrir tæpum 20 árum síðan.

Noregur er með auglýsingabann á áfengisauglýsingum eins og á Íslandi og spurði þáttastjórnandinn, Rakel Sveinsdóttir, hvers vegna það væri svona brýnt að breyta einhverju í þessum efnum hér á landi. Bjór og vín væru í boði í ÁTVR, margir væru á móti áfengisauglýsingum og sumir teldu jafnvel að þær myndu auka á áfengisneyslu og vanda. Ólafur og Valgeir bentu þá á, að auglýsingabannið væri meðal annars að mismuna innlendum og erlendum vínframleiðendum. Hér á landi væri bjór- og vínframleiðsla að vaxa, skapa störf og verðmæti en þessir aðilar ættu erfitt um vik, því þeir hefðu ekki leyfi til að koma vörumerkjunum sínum á framfæri. Þannig ættu auglýsingar um áfengi ekki að hvetja til meiri neyslu, heldur frekar að benda á ákveðin vörumerki umfram önnur.

Meira um þessa umræðu í þættinum Ég bara spyr, sem er endursýndur á Hringbraut í allan dag og aftur um helgina.