Arður og eigin bréf fyrir 44 ma.kr.

Á hlut­hafa­fundi Ari­on banka í dag var samþykkt að 25 millj­arðar króna yrðu greidd­ir til hlut­hafa. Auk þess er stjórn bank­ans veitt umboð og heim­ild til end­ur­kaupa á allt að 10% hlut í fé­lag­inu fyr­ir að há­marki 18,8 millj­arða króna. 

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu Ari­on banka til Kaup­hall­ar­inn­ar en þar er tekið fram að end­ur­kaup á hluta­bréf­um drag­ist frá arðgreiðslunni. Arðgreiðslan og end­ur­kaup­in eru sögð að fullu í sam­ræmi við lang­tíma­mark­miði Ari­on banka um að minnka um­fram eigið fé bank­ans.

Að fram­kvæmd lok­inni lækki eig­in­fjár­hlut­fall bank­ans um ríf­lega 3% en sé engu að síður vel um­fram kröf­ur FME og það sem bank­inn telji hæfi­legt. Fram­kvæmd­in er hins veg­ar háð því að Kaupskil verði búin að selja að minnsta kosti 2% hlut í bank­an­um fyr­ir 15. apríl.

Eins og kom fram í Morg­un­blaðinu í dag munu stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins ekki kaupa hlut í Ari­on banka á grund­velli til­boðs sem Kaupskil, stærsti eig­andi hans, gerðu þeim fyr­ir skemmstu.