Seðlabanki Íslands verður skipaður fjórum bankastjórum samkvæmt drögum að frumvarpi um breytingar á lögum um Seðlabankann sem nú liggur fyrir. Þannig verður einn aðalseðlabankastjóri og þrír varabankastjórar, samkvæmt heimildum Markaðarins.
Í stað núverandi fyrirkomulags, þar sem er einn aðstoðarseðlabankastjóri, er því gert ráð fyrir þremur varabankastjórum sem munu skipta með sér verkum. Í frumvarpinu er lagt til að einn fari með peningamál, annar beri ábyrgð á fjármálastöðugleika og þriðji varabankastjórinn verði yfir fjármálaeftirliti innan sameiginlegrar stofnunar Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins (FME).
Nánar á
https://www.frettabladid.is/markadurinn/bankastjorum-selabankans-fjoelga-i-fjora