Bankastarfsmönnum fækkar á íslandi

Bankastarfsmönnum fækkaði um rúmlega 200 á síðasta ári og hefur fækkað um 40 prósent frá hruni. Fyrst og fremst eru þetta starfsmenn hjá viðskiptabönkunum. RÚV.is greinir frá.

Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja, segir í samtali við RÚV  að þetta hafi verið viðvarandi þróun síðustu ár. „Frá hruni þá hefur í viðskiptabönkum og sparisjóðum samanlagt fækkað um 40 prósent, voru flest rúmlega 4000 sem voru að starfa í kerfinu í heild en eru núna um 2700.“

Hann bendir á að tækniþróun skýri heilmikið í þessum efnum, enda sjálfvirkni í bankaþjónustu sífellt að aukast. Auk þess hafi útibúum banka fækkað gífurlega. „Það er sífellt verið að færa meira út af almennri þjónustu í tækin okkar. En einnig hefur útibúum banka og sparisjóða fækkað um helming, þau voru flest 170 en eru um 80 í dag.“

Friðbert segir að þrátt fyrir þessa fækkun starfsmanna á síðasta ári hafi engin hópuppsögn átt sér stað í bankageiranum, og engin í það minnsta ennþá á þessu ári. „Við höfum ekki fengið neina tilkynningu um hópuppsagnir, hvorki í fyrra þá var aldrei hópuppsögn, þó að það væru svona margir sem misstu vinnuna, og það hefur ekki komið nein slík árið 2019,“ segir Friðbert.