Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og varaformaður fjárlaganefndar gagnrýnir íslenskt bankakerfi harðlega í nýrri blaðagrein og segir það einkennast af hroka og virðingarleysi fyrir hagsmunum almennings.
Grein Guðlaugs var birt í Morgunblaðinu í gær og er skrifuð í tilefni af því að hann sem þingmaður - og þar með eftirlitsaðili með regluverki fjármálakerfisins - hefur freistað þess að fylgjast með stöðu gengislána innan bankanna, en enn er ágreiningur um úrlausn mikils fjölda þeirra sem samtals nemur gífurlegum fjárhæðum. Guðlaugur kveðst tveimur mánuðum síðar hafa fengið svör með eftirgangsmunum en þau hafi ýmist verið svo rýr eða engin að undrun sæti. Landsbnakinn hafi svarað engu efnislega, Íslandsbanki sagst ekki hafa nokkur svör og Arion banki sagt að Alþingi kæmi þetta ekki við.
\"Það skal ítrekað að hér var spurt um mjög stóra hagsmuni fyrir fyrirtæki og heimilin í landinu,\" skrifar Guðlaugur Þór í grein sinni.
Hann minnist tímanna fyrir hrun: \"Stjórnmálamönnum, hér á Íslandi og í flestum öðrum vestrænum löndum, var legið á hálsi fyrir að hafa ekki verið vakandi fyrir þeirri hættu sem umfangsmikil starfsemi banka og fjármálastofnana hefur í för með sér,\" rifjar Guðlaugur upp og segir svo að enda þótt bankakerfið hafi vissulega minnkað eftur hrun þá verði menn engu að síður að vera vel á verði: \"Kerfisleg áhætta af starfsemi þeira er mikil og völd þeirra og áhrif í íslensku þjóðfélagi eru gríðarleg,\" skrifar hann.
Og fær samt engin svör.
\"Skattgreiðendur eiga betra skilið.\"