Fyrstu fimm árin eftir hrun, var fjöldi uppboðseigna sem bankarnir þrír og Íbúðalánasjóður eignaðist, að meðaltali 4,3 á dag, eða samtals 7790 eignir á árabilinu 2009 til 2014. Langflestar eignir voru uppboðseignir sem Íbúðalánasjóður eignaðist, en sjóðurinn og dótturfélagið Klettur eiga í dag 2.238 eignir. Þar af eru um 56% þeirra eigna í útleigu.
Í tölum sem upplýsingaveitan spyr.is birtir í dag, en hún er samstarfsaðili Hringbrautar, kemur fram að Íbúðalánasjóður hefur selt sem samsvarar um 36% uppboðseignanna frá hruni, en þetta hlutfall er 82% hjá Íslandsbanka, sem kemur næstur á eftir Íbúðalánasjóði hvað fjölda uppboðseigna eftir hrun varðar. Þótt langflestar eignir sem hér um ræðir, séu eignir sem bankar eða Íbúðalánasjóður hafa keypt á nauðungaruppboðum, eru einnig dæmi um að bankarnir hafi samið við lántakendur í vanskilum um kaup á eignum þeirra með því sem kallast ,,frjálsir samningar.”
Nánari upplýsingar um málið er hægt að nálgast á spyr.is .