Þjóðmálarýnirinn orðhvati, Jónas Kristjánsson segir að bankarnir á íslandi hafi ekkert lært á hruninu sem þeir orsökuðu um og upp úr miðjum síðasta áratug. Þeir séu aftur orðnir að skrímslum.
\"Bankahrunið varð vegna bankanna. Orðnir að skrímsli, sem framleiddi peninga eins og skít, er voru verðlausir eins og skítur. Þannig hrundu þeir og þannig hrundi Seðlabankinn og ríkissjóður fór á hliðina í ofanálag,\" skrifar ritstjórinn gamli á skeleggu bloggi sínu í dag.
\"Bankarnir eru enn orðnir að skrímsli,\" skrifar hann áfram og bætir við: \"Í skjóli einokunar okra þeir stjórnlaust á fyrirtækjum og fólki. Hafa grætt 400 milljarða frá endurreisn þeirra, núna um 80 milljarða á ári.\"
Hann skefur ekki utan af því: \"Bankarnir eru að láta þjóðfélaginu blæða út. Nú þegar verður að stöðva þá, reka siðblinda bankstera og setja inn ábyrgt fólk. Jafnfram verður að stöðva vaxtaokrið tafarlaust, afnema verðtryggingu og síðan að losna við krónuna.\"