Bankaráð Landsbanka Íslands hefur ekki fundað sérstaklega um umdeilda sölu á hlut bankans í Borgun heldur fundar ráðið samkvæmt reglulegri áætlun. Bankastjóri Landsbankans bar því einn ábyrgð á sölunni.
Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í morgun en þar segir að þrátt fyrir að bankaráðið hafi ekki komið að sölunni beri það fullt traust til Steinþórs Pálssonar, yfirmanns bankans.
Forkólfar Bankasýslu ríkisins hafa verið boðaðir á fund fjárlaganefndar Alþingis vegna Borgunarmálsins á miðvikudag, en hvorki bankastjóri Landsbankans né bankaráð hans hafa verið boðuð fyrir nefndina.
Steinþór Pálsson segir í Fréttablaðinu í morgun að það sé alveg sjálfsagt að mæta fyrir þingnefndina sé þess óskað. Hann hafi gert það síðast fyrir ári til að ræða einmitt þetta sama mál.