Bankar: leið framsóknar hættulegust

\"Þótt allra ítrustu gagnsæisreglna verði gætt við sölu á bönkunum nú eru að öllu óbreyttu ekki aðrir kaupendur í  þessu litla lokaða peningakerfi en lífeyrissjóðirnir og þröngur hópur fjárfesta.\"

Þetta skrifar Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra í nýjasta pistli sínum á hringbraut.is sem fjallar um nauðsynlega sölu ríkisins á hlut þess í bönkum sem Þorsteinn segir að eigi fremur heima í höndum kapitalista en ríkisins sem eigi þess í stað að hlúa að velferð samfélagsins: \"Það gerist aftur á móti ekki af sjálfu sér,\" bendir Þorsteinn á, því vandinn er þessi: \"Til þess þarf meðal annars kerfisbreytingu með samkeppnishæfum gjaldmiðli.\"

Hann segir það varla í boði fyrir lífeyrissjóði að festa stóran hluta eigin fjár í áhættusömum bankaviðskiptum á Íslandi: \"Í raun þyrftu lífeyrissjóðirnir að fjárfesta að tveimur þriðju hlutum erlendis til þess að dreifa áhættu sjóðfélaganna eðlilega. Sú áhættudreifing þolir ekki mikla bið.\"

En hver á þá að fjárfesta í íslensku bönkunum? \"Best væri að fá erlenda eigendur að einum eða tveimur bönkum,\" skrifar Þorsteinn og bætir við. \"Þá fyrst væri von á raunverulegri samkeppni. Meðan við höfum ekki samkeppnishæfan gjaldmiðil eru minni líkur á en ella að það gerist. Þessa hugsun má líka orða svo að krónan sé besti vinur þeirra sem vilja koma í veg fyrir alvöru samkeppni í bankakerfinu.\"

Hann fagnar tillögum ungra sjálfstæðismanna á nýafstöðnum landsfundi um að ný mynt sé forsenda fyrir því að hér geti þrifist heilbrigt markaðsbankakerfi í raunverulegu samkeppnisumhverfi: \"Stærsti vandinn í pólitíkinni í dag er sá að það vantar forystu á Alþingi fyrir slíkum kerfisbreytingum,\" skrifar Þorsteinn í dag og geldur varhug við úreltri ríkisvæðingu: \"Mesta hættan í íslenskum stjórnmálum stafar hinsvegar af hugmyndum Framsóknar um að breyta eigendastefnu ríkisbankanna í þeim tilgangi að nota peninga skattborgaranna til þess að niðurgreiða vexti af ósamkeppnishæfum gjaldmiðli. Það mun veikja velferðarkerfið og leiða til óhagkvæmni og spillingar í fjármálakerfinu.\"