Bankakerfið enn rekið eins og áður

Bankakerfið íslenska er enn í grundvallaratriðum rekið með sama hætti og fyrir hrun ef eignarhaldið er undan skilið, skrifar Styrmir Gunnarsson fyrrverandi ristjóri Morgunblaðsins í vikulegum pistli sínum í helgarblaðinu.

„Senn er áratugur liðinn frá Hruni en kjarni þess var fall íslenzka bankakerfisins sem hafði verið einkavætt nokkrum árum áður. Við, sem alla tíð höfum talið einkarekstur hafa ótvíræða yfirburði yfir opinberan rekstur, verðum að horfast í augu við að niðurstaðan af einkavæðingu bankanna var alvarlegur áfellisdómur fyrir okkar málstað. Sá þáttur málsins hefur nánast ekkert verið til umræðu. Hins vegar er ríkt tilefni til þess fyrir talsmenn og stuðningsmenn einkaframtaks í atvinnurekstri að ræða þann þátt málsins“, hefur Styrmir grein sína á.

Og m.a. skrifar hann: „En þegar hér er komið sögu er kominn tími til að ljúka því verki sem við hefur blasað í áratug að þyrfti að ráðast í, þ.e. endurskipulagningu fjármálakerfisins. Nú er ekki lengur um það deilt að bankakerfið er einfaldlega of stórt fyrir svo lítið samfélag og of dýrt.“

Þó beri að taka fram að bankarnir hafa dregið saman seglin, þeir hafa fækkað útibúum sem auðvitað var sjálfsagt vegna tækniframfara og þeir hafa fækkað starfsfólki verulega.

Stymir heldur áfram: „Við, sem alla tíð höfum talið einkarekstur hafa ótvíræða yfirburði yfir opinberan rekstur, verðum að horfast í augu við að niðurstaðan af einkavæðingu bankanna var alvarlegur áfellisdómur fyrir okkar málstað. Sá þáttur málsins hefur nánast ekkert verið til umræðu. Hins vegar er ríkt tilefni til þess fyrir talsmenn og stuðningsmenn einkaframtaks í atvinnurekstri að ræða þann þátt málsins“.

„Þótt 10 ár séu liðin frá falli íslenzku bankanna hefur Alþingi ekki enn tekið afstöðu til tveggja grundvallarþátta í endurskoðun bankakerfisins sem blöstu við nánast strax eftir þann örlagaríka atburð. Þá þegar hófust umræður um aðskilnað viðskiptabanka og fjárfestingarbanka og ljóst að stuðningur var við slíkan aðskilnað í öllum flokkum. Hann hefur hins vegar ekki verið lögleiddur“

Stymir spyr vegna þessa: „Hvers vegna ekki?“