Þegar Íslandsbanki kemst í eigu ríkissjóðs um áramótin verða tveir af þremur viðskiptabönkunum í meirihlutaeigu ríkisins. Jafngildir það að ríkið ráði 70% af þessum markaði auk þess að eiga 13% hlut í Arion banka.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samtökum atvinnulífsins í dag sem minna á að slík ríkisumsvif í fjármálakerfinu eru óþekkt á Vesturlöndum: \"Hlutfallið nú er sambærilegt og í Rússlandi en hærra en í Venesúela,\" segir þar og má lesa nokkra gagnrýni út úr tilskrifi samtakanna: \"Um áramótin komumst við í hóp með Hvíta-Rússlandi og Indlandi þar sem eignarhlutur hins opinbera í fjármálakerfinu er hlutfallslega hæstur skv. Alþjóðabankanum. Áhætta ríkisins af þessum rekstri verður mjög mikil og brýnt að hraða sölu á hlut ríkisins í bönkunum.\"
Forvígismenn Samtaka atvinnulífsins gefa ríki eftirfarandi ráð: \"Við söluna verður að tryggja að peningamagn í umferð aukist ekki með tilheyrandi þensluáhrifum. Því þarf að ljúka útboði til að hleypa eigendum svonefndra aflandskróna úr landi. Verðmæti sem koma í hlut ríkissjóðs verður að nýta skynsamlega og ætti að nýta fjármagnið til að greiða niður skuldir.\"