Bankagirðingar brotna niður

Flestir tengja Valitor við Visa-kortin en fáir átta sig á að Valitor er eitt stærsta hugbúnaðarhús landsins. Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitors, segir í viðskiptaþætti Jóns G. sem frumsýndur var í gærkvöld að um 70 prósent af tekjum Valitors séu erlendis og hinn mikli alþjóðlegi vöxtur í netviðskiptum sé grunnurinn að hröðum vexti fyrirtækisins á undanförnum árum. „Það eru engin fordæmi fyrir þeirri miklu gerjun sem orðið hafa í þjónustu banka og fjármálafyrirtækja á síðustu árum. Allar girðingar í hinum alþjóðlega fjármálageira eru að brotna niður og nýir kostir blasa við nýjum kynslóðum,“ segir Viðar.