Bankað uppá: svavar með sirrý um helgina

Þátturinn Bankað uppá hefur slegið í gegn á Hringbraut. Frá og með næstkomandi laugardegi, verður hann til sýningar kl.21.00 á laugardagskvöldum. Í næsta þætti kemur það í hlut Svavars Halldórssonar, framkvæmdastjóra Landsamtaka sauðfjárbænda, að giska á það hver er eigandi heimilisins. Eins og flestir muna, starfaði Svavar lengi vel sem fréttamaður á RÚV og því verður spennandi að sjá hvort hið þaulreynda fréttanef fyrrum fjölmiðlamannsins, muni leiða hann á réttar brautir þegar heimili hins þjóðþekkta einstaklings er skoðað í þaula.

Að sögn Sirrýar, eru næstu þættir reyndar einstaklega spennandi en eins og fyrr, má ekkert gefa upp um hvern er verið að heimsækja. Þættirnir hafa mælst sérstaklega vel sem vinsælir fjölskylduþættir, þar sem hver og einn áhorfandi keppist við að giska á rétta svarið, áður en Sirrý opinberar það í lokin, hver í raun á heima hvar.

Nýr sýningartími Bankað uppá á laugardögum, er liður í því að Hringbraut stóreflir dagskrá sína á næstu dögum og vikum. Frá og með maímánuði verða frumsýningar á innlendu efni öll kvöld vikunnar og með tilliti til þess hversu vinsælir þættirnir eru, lá það beinast við að Bankað uppá yrði einn af stærstu helgarþáttum stöðvarinnar.

\"\",,Það leggst bara vel í mig að breyta Bankað uppá í vinsælan helgarþátt, enda veit ég að það eru margir sem horfa á þáttinn saman og upplifa hann eins og þrælspennandi spurningaþátt. Ég get líka lofað áhorfendum því að næstu þættir verða einstaklega spennandi, ólíkir samt en eins og áður.... ég má auðvitað ekkert segja fyrirfram! Um næstu helgi heimsækjum við einstakling sem í rauninni öll þjóðin þekkir en þarnæsta laugardag, heimsækjum við allt öðruvísi heimili og ég veit að sá þáttur mun ekkert síður vekja athygli.”

Nú er bara að fylgjast með næsta þætti, klukkan 21.00 laugardaginn 30.apríl, og sjá hvort hægt er að finna út hver eigandi heimilis er, áður en svarið er opinberað í lok þáttarins.

Smellið hér til að horfa á eldri þætti.