Sjónvarpskonan Sirrý lagði land undir fót ásamt Steingrími Jóni Þórðarsyni í þætti sínum Bankað upp á á Hringbraut í gærkvöld og leyfði áhorfendum að giska hver byggi í húsinu sem hún læddist um að þessu sinni.
Þessir þættir Sirrýjar hafa slegið í gegn á Hringbraut og eru meðal allra vinsælustu þátta stöðvarinnar, enda þótt aðeins fimm þættir séu nú að baki þar sem farið er inn á heimili nokkurra þjóðkunna Íslendinga sem fólk hefur svo sannarlega misjafnlega mikið fyrir að átta sig á hverjir eru í raun og sann.
Í þessum fimmta þætti seríunnar, sem nú er kominn inn á vef stöðvarinnar, er sumsé farið upp á Skaga og heim til þjóðþekktrar konu sem býr í sögufrægu húsi í bænum. Húsgögnin eru öll yfir 100 ára gömul og eiga sér merka sögu.
Leikkonan Elma Lísa Gunnarsdóttir er að þessu sinni með í för og bankar upp á með Sirrý og giskar fyrir hönd áhorfenda á hver býr í þessu glæsilega húsi.
Bankað upp á er frumsýnt öll þriðjudagskvöld á Hringbraut, endursýnt í dag og einnig sjáanlegt sem fyrr segir á vef stöðvarinnar.
Já - og gangið í bæinn.
Áhorfendur eru hvattir til að giska líka en það sem gerir gátuna nokkuð erfiða núna er að ekki er gefið upp hvar á landinu við erum stödd fyrr en í síðari hluta þáttarins. Góða skemmtun.