Bankað upp á: já, hver var konan? myndband

Annar þátturinn af heimsóknarþáttum Sirrýjar, Bankað upp á, var frumsýndur í gærkvöld en þar slóst leikarinn Gunnar Hansson í för með henni og lagðist í þvílíkar og umfangsmiklar kjólarannsóknir að annað eins hefur varla sést í sjónvarpi á Íslandi.

Fyrsti þátturinn af Bankað upp á, sem frumsýndur var síðasta þriðjudagskvöld, vakti mikla athygli en þar fór leikarinn Björgvin Franz Gíslason með Sirrý út á Nes og átti í stökustu vandræðum með að finna út hver átti heima þar í forláta einbýlishúsi þar sem eldavélin og ofninn voru svo að segja ónotaðir, en skúffa í eldhúsinu reyndist yfirfull af núðlusúpum.

Það kom svo í ljós í lok þáttarins að heimilið at arna heyrir til Yrsu Sigurðardóttur, rithöfundi.

 

Þessi samkvæmisleikur hélt svo áfram í gærkvöld, nú með rannsóknaraugum Gunnars Hanssonar, en bankað var upp á hjá þjóðþekktri konu sem hefur ekki áður boðið þjóðinni heim til sín með þessum hætti, enda hefur hún verið fremur prívat þegar kemur að heimili sínu, en ekki er ónýtt að skoða einmitt þáttinn í endursýningu á stöðinni í dag eða á vef hennar þar sem alla þætti Hringbrautar er að finna.

Þessi húsráðandi sýnir nefnilega kjólana sína í þættinum, en þar eð hann er mikið fyrir umhverfisvernd og á móti sóun, heldur hann fataskiptakvöld með vinkonum sínum, en þá mæta stelpurnar með föt sem þær eru hættar að nota og skiptast á flíkum.

Sumsé, góð hugmynd fyrir umhverfið - og fjárhaginn.

En hver var konan?

Bankað upp á er í frumsýningu öll þriðjudagskvöld klukkan 21:30 og endursýningu í dag, svo og um helgina.