Það verður ,,Bankað upp á” á fallegu heimili í Reykjavík í kvöld, þriðjudagskvöld, kl. 21:30 á Hringbraut.
Sirrý fer með Gunnari Hanssyni leikara inn á heimili manns sem hefur unnið á sama staðnum í miðborg Reykjavíkur í bráðum 40 ár. Það reyndi verulega á ,,rannsóknarlögguhæfileika” Gunnars Hanssonar en hann dreymir um að eignast einhverntíman jafn snyrtilegan bílskúr og þarna er að finna. Spurning hvort áhorfendur verða fljótir að finna út hver spilar á saxafón, á 4 kaffivélar og býr í þessu fallega húsi.
Sjón er sögu ríkari. Þáttinn vinsæla ,,Bankað upp á” má alltaf sjá á hringbraut.is en þar má meðal annars sjá nýjar hliðar á Katrínu Jakobsdóttur, Yrsu Sigurðardóttur og mörgum fleirum þekktum einstaklingum sem hefur verið ,,Bankað upp á.”