Bankað upp á hjá kunnum athafnamanni

Nanna Kristín Magnúsdóttir, leikkona fer með Sirrý inn á heimili hjá þekktum og mjög áhugaverðum Íslendingi í þætti sínum Bankað upp á á Hringbraut í kvöld - og það er hreint ekki sjálfgefið að áhorfendur viti hver er húsráðandi á því heimili.

Þessir þættir Sirrýjar ruku strax í efsta sæti á vinsældarlista Hringbrautar, en í fyrstu tveimur þáttunum reyndi annars vegar Björgvin Franz Gíslason að átta sig á hver byggi í einbýlishúsi úti á Nesi og hins vegar Gunnar Hansson að grennslast fyrir um hver byggi í látlausri blokkaríbúð í Reykjavík, en þar reyndust vera komin heimili Yrsu Sigurðardóttur, rithöfundar og Katrínar Jakobsdóttur, alþingismanns.

Í þætti kvöldsins sýnir Nanna Kristín að henni er fleira til lista lagt en að leika því hún er líka einstaklega góð í að sjá út lífsstíl fólks og athæfi. það er ebinlínis spurning hvort hún eigi að ráða sig á Rannsóknarlögreglunni ef henni fer að leiðast þófið á leiksviðinu sem er þó lítil hætta á.

Og það er svo eðli þáttanna að áhorfendur geta freistað þess að vera fyrri til - og finna sumsé út í þessu tilviki hvaða athafnasami karlmaður á heima í þætti kvöldsins.

Þátturinn Bankað upp á er frumsýndur klukkan 21:30 og endursýndur strax klukkan 23:30, svo og á morgun, en verður sjáanlegur á vef stöðvarinnar strax í fyrramálið.