Það beinlínis rauk úr höfðinu á leikaranum Gunnari Hanssyni þar sem hann freistaði þess að finna út hvaða kona býr í einbýlishúsinu sem þau Sirrý heimsóttu í þættinum Bankað upp á á Hringbraut í gærkvöld.
Þennan leyndardómsfulla þátt má nú sjá á vef stöðvarinnar, en heimsóknarþættir Sirrýjar, þar sem hún fær gest sinn og áhorfendur til að reyna að finna út hver býr í húsinu sem heimsótt er, hafa vakið rífandi lukku á meðal áhorfenda Hringbrautar. Fjórði þátturinn fór í loftið klukkan 21:30 í gærkvöld, en í fyrstu þremur þáttunum átti fólk í stökustu vandræðum með að átta sig á heimahúsi Yrsu Sigurðardóttur, rithöfundar, Katrínar Jakobsdóttur, formanns VG og Gísla Gíslasonar, athafnamanns.
En hver var kona gærkvöldsins? Læknir? Sennilega. Hún hefur greinilega áhuga á heilbrigðum lífsstíl. Og heimilið hennar lítur út fyrir að vera íverustaður aksjón-manneskju. En hvar á landinu erum við eiginlega stödd?
Sirrý bankar upp á öll þriðjudagskvöld klukkan 21:30, en þáttinn má sem fyrr segir sjá hér á vef stöðvarinnar eins og allt annað sjónvarpsefni stöðvarinnar, en auk þess er hann endursýndur í dag og um helgina á Hringbraut.