Alþingismenn og starfsmenn Alþingis þurfa að beygja sig undir bandarískan fána á leið sinni á nefndafundi Alþingis, en fundarhús þingsins er í háhýsi gegnt þinghúsinu sjálfu, en þar á jarðhæð er rekinn American Bar sem flaggar bandaríska fánanum daglega. Þingmenn segja þetta óþolandi og forseti Alþingis tekur í sama streng.
Í samtali við Morgunblaðið í gær tók Vilhjálmur Bjarnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins svo til að orða að þetta væri "óboðlegt og óþolandi." Hann talar þar fyrir hönd fjölmargra annarra þingmanna sem telja ótækt að gestir Alþingis Íslendinga sem streyma á fundi þingnefnda þess, þar á meðal erlendir ráðamenn þurfi að láta þess ósköp yfir sig ganga.
Fulltrúar frá hinu háa Alþingi hafa rætt við eigenda barsins og beðið hann vinsamlegast að taka niður fánann sem sé úr takti við aðra starfsemi í húsinu, en þeir hafa ekki orðið við þeim tilmælum.
Einar K. Guðfinnsson forseti Alþingis segir þennan árekstur við einkarekinn stað vera dæmi um nauðsyn þess að öll starfsemi Alþingis komist undir eitt og sama þak á Alþingisreitnum, en þingið leigir fjölda fasteigna vítt og breitt um Kvosina undir starfsemi þingnefnda, þingflokka og aðra starfsemi sína fyrir mikla fjármuni.