Bandaríska sendiráðið kaupir engjateig 7

Banda­ríkja­menn hafa gengið frá kaup­um á hús­eign­inni að Engja­teigi 7 í Reykja­vík en stefnt er að því að flytja sendi­ráð Banda­ríkj­anna þangað af Lauf­ás­vegi þar sem það hef­ur verið til húsa allt frá ár­inu 1941 þegar það var sett á lagg­irn­ar.

Þetta staðfest­ir Krist­inn Gils­dorf, upp­lýs­inga­full­trúi sendi­ráðsins, í svari við fyr­ir­spurn frá mbl.is, en vefurinn fjallar um væntanlegan flutning sendiráðsins úr Þingholtunum austur undir Laugardal í dag.

Þar segir að hús­eign­in við Engja­teig hafi áður verið í eigu verk­taka­fyr­ir­tæk­is­ins Ístaks og hýst til skamms tíma höfuðstöðvar þess. Húsið er rúm­lega 2.000 m2 að flat­ar­máli, byggt árið 2002.

Áður en sendi­ráðið get­ur flutt í nýja hús­næðið þarf hins veg­ar að gera ýms­ar breyt­ing­ar á því svo það henti starf­sem­inni og upp­fylli kröf­ur sem ut­an­rík­is­ráðuneyti Banda­ríkj­anna geri.

Þá hef­ur ekki verið gengið frá skipu­lags­mál­um gagn­vart Reykja­vík­ur­borg vegna þeirra breyt­inga sem gera þarf á hús­inu að sögn Krist­ins. 

Í til­kynn­ingu, sem Ístak sendi Kaup­höll Íslands fyr­ir helgi kom fram að verðmæti samn­ings­ins væri sem nem­ur rúm­um 4,3 millj­örðum króna. Inni í því eru bæði kaup­in á hús­eign­inni og breyt­ing­ar á henni. Þar sagði enn­frem­ur að fram­kvæmd­ir hæf­ust í næsta mánuði og að þeim yrði lokið inn­an þriggja ára.