Bandarísk lögga slátrar 17 ára dreng

Stór hluti heimsbyggðarinnar hefur fyllst undrun, sorg og reiði eftir að lögregla í Chicaco í Bandaríkjunum birti myndband sem tekið var úr lögreglubíl.

Þar sést hvernig 17 ára unglingur með dökkan hörundslit er skotinn sextán skotum af lögreglumanni úti á götu. Niðurstaðan er að lögreglumaðurinn verði ákærður fyrir morð af ásettu ráði. Hann heitir Ja­son Van Dyke.

Sjá má myndband af þessum skelfilega atburði hér en eins og fram kemur hjá fréttaþul CNN getur það að horfa á myndbandið, sem farið hefur í dreifingu á youtube, haft mjög truflandi áhrif á áhorfendur, einkum viðkvæmt fólk.

Margar rannsóknir sýna að lögreglumenn í Bandaríkjunum bregðast við af meira ofbeldi þegar svart fólk á í hlut en hvítt. Lögmaður fjölskyldu myrta drengsins, Laquan McDon­ald, segir að unglingurinn hafi verið hræddur og þess vegna hafi hann veifað hnífi þegar lögregla fylgdist með honum.

Ekki verður séð á myndbandinu að almannaógn stafi af drengnum.