Bandaríski herinn hefur óskað eftir tilboðum frá íslenskum og bandarískum verktökum vegna framkvæmda á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli, að því er ruv.is greinir frá.
Kostnaður við framkvæmdirnar nema 1,7 milljarði íslenskra króna en þær snúast um hönnun og verkframkvæmd vegna breytinga á flugskýli 831 og hönnun og byggingu sjálfvirkrar þvottastöðvar fyrir flugvélar. Kostnaður vegna breytinganna á flugskýli 831 eru sagður nema 12,8 milljónum dollara eða 1,3 milljörðum.
Á fylgiskjali, sem hægt er að nálgast á vef á vegum bandaríska hersins, kemur fram að breytingarnar felast í endurnýjun á hurð flugskýlisins og rafkerfi sem flugvélarnar tengjast við.
Þá verður einnig boðin út hönnun og verkframkvæmd vegna byggingar sjálfvirkrar þvottastöðvar fyrir flugvélar. Kostnaðaráætlun vegna verkefnisins nemur 4,3 milljónum dollara eða tæpum hálfum milljarði.