Bandaríkin og ESB þjóðir hafa gripið til harðra framhaldsrefsiaðgerða gegn Rússum vegna eiturgasárásarinnar í Salisbury. Donald Trump, Bandaríkjaforseti, hefur rekið 60 rússneska sendiráðsstarfsmenn úr landi og skipað Rússum að loka sendiráðsskrifstofu sinni í Seattle.
Anders Samuelsen, utanríkisráðherra Danmerkur, tilkynnti á blaðamannafundi í dag að tveir rússneskir diplómatar yrðu reknir úr landi. Þýskaland, Frakkland, Ukraína, Eystrasaltslöndin, Pólland og fleiri Evrópuþjóðir hafa gripið til viðlíka agerða gagnvart rússneskum diplómötum, alls 14 lönd.
Sveinn H. Guðmarsson, upplýsingafulltrúi hjá utanríkisráðuneytinu, segir í samtali við RÚV að engin ákvörðun hafi verið tekin um það hjá íslenskum stjórnvöldum hvort rússneskir diplómatar verði reknir úr landi. Grannt sé þó fylgst með framvindu málsins.