Rannsóknarnefnd samgönguslysa vill að hjólreiðamenn verði bannaðir á umferðamiklum fjölakreinavegum á höfuðborgarasvæðinu. Þetta kemur fram í skýrslu nefndarinnar um banaslys sem varð á Vesturlandsvegi í desember 2015. Þar lést hjólreiðamaður eftir að leigubíll ók aftan á hann.
Nefndin telur að innanríkisráðuneytið þurfi að endurskoða reglugerð um gerð og búnað reiðhjóla. Brýnt verði á reglum um aukahluti í bílum í sjónsviði ökumanna. Hlutir á mælaborði leigubílsins birgðu ökumanna sýn fram á veginn. Nefndin kemst að þeirri niðurstöðu að vegurinn sé hættulegur fyrir hjólreiðamenn. Einnig hafi hjóreiðamaðurinn ekki sýnt nægilega aðgæslu þegar hann hjólaði á veginum.
Nánar www.msa.is