Banaslys við Hvalfjarðargöngin: Var á flótta undan lögreglu

Talið er að slys sem átti sér stað við Hvalfjarðargöngin í gærkvöldi sé dauðaslys samkvæmt frétt sem birt var á Mannlíf nú í morgun.

Fréttablaðið greindi fyrst frá málinu í gær en að sögn sjónarvotta átti alvarleg bílvelta sér stað við Hvalfjarðargöngin í kringum hálf átta í gærkvöldi. Eiginmaður sjónarvottar segir að ökumaðurinn, sem var á flótta undan lögreglu, hafi lent í árekstri sem orsakaði það að bíllinn flaug upp í loftið og kastaðist ökumaður bílsins í kringum 10 metra frá slysstað.

Ekki er vitað um aðdraganda málsins eða hvers vegna maðurinn var á flótta undan lögreglu.

Eiginmaður sjónarvottar sagði í viðtali við Fréttablaðið að áreksturinn hafi gerst Reykjavíkurmeginn við göngin. „Eftirför lögreglu endaði þannig að sá sem var að reyna að komast undan lenti í árekstri sem til kom eftir að hann ók mjög óvarlega. Þá flaug bíllinn upp í loftið“ segir maðurinn „Í þokkabót þá kastaðist maðurinn út úr bílnum á meðan hann var í loftinu. Alveg einhverja tíu metra,“ segir eiginmaður sjónarvottar.