Síðdegis í gær barst Lögreglunni tilkynning um alvarlegt umferðarslys. Átti slysið sér stað á Innstrandarvegi, skammt frá Hólmavík. Þar hafði bifhjóli verið ekið aftan á bifreið með þeim afleiðingum að ökumaður bifhjólsins slasaðist mikið og lést stuttu síðar. Ekki er hægt að greina frá nafni ökumannsins að svo stöddu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum. Þar segir enn fremur:
Lögreglan á Vestfjörðum annast rannsókn málsins í samvinnu við Tæknideild lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu. Rannsóknarnefnd samgönguslysa kom einnig á vettvang vegna rannsóknar málsins.