Banaslys í ólafsvík: ók bíl í höfnina

Maður á níræðis­aldri lést er bíll hans fór í höfn­ina í Ólafs­vík síðdeg­is í gær. Lífg­un­ar­tilraun­ir hóf­ust strax og búið var að ná bíln­um upp úr höfn­inni en þær báru ekki ár­ang­ur. 

Fram kem­ur í til­kynn­ingu frá lög­reglu, að maður­inn, sem var einn í bíln­um, hafi komið ak­andi niður á bryggj­una og virðist síðan hafa misst stjórn á hon­um, með þeim af­leiðing­um að bíll­inn fór yfir bryggjukant­inn og hafnaði á hvolfi í höfn­inni. 

Málið er í rann­sókn hjá rann­sókn­ar­deild Lög­regl­unn­ar á Vest­ur­landi.